Prenthaus

Mikil aðsókn á FAB-Lab námskeiðum

Mynd úr smiðjunni af vef SÍMEY.

Fyrsta námskeið í FAB-Lab smiðjunni sem fer fram í húsakynnum VMA hófst í síðustu viku. Aðsókn hefur farið fram úr öllum vonum samkvæmt SÍMEY. Nú þegar er fullbókað á næsta námskeið sem hefst 28. febrúar en ekki verður bætt við fleiri námskeiðum fyrir næsta haust. Nú þegar er farið að skrá niður fyrirspurnir fyrir námskeiðin þá.

Á námskeiðunum kenna Helga Jónasardóttir, vöruhönnuður og kennari við listnámsbraut VMA, Halldór Grétar Svansson, þrívíddarhönnuður og Ólafur Pálmi Guðnason, sem kennir þrívíddarforritun.

Að FAB-Lab smiðjunni hafa staðið frá upphafi VMA, SÍMEY, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Akureyrarbær. Auk þess leggur Eyjafjarðarsveit smiðjunni til rekstrarframlag. Fyrri part dags, til kl. 16, nýta skólar á svæðinu smiðjuna en seinnipart dags eru þar námskeið á vegum SÍMEY og almenningur fær einnig aðgang að smiðjunni.

Næstkomandi föstudag, 17. febrúar, verður opið hús fyrir almenning í FAB-Lab smiðjunni í VMA, þar sem allir áhugasamir geta komið og kynnt sér starfsemina.

Sambíó

UMMÆLI