Mikil mildi að ekki fór verr þegar kviknaði í íbúðarhúsi á Akureyri

Mikil mildi að ekki fór verr þegar kviknaði í íbúðarhúsi á Akureyri

Einn var flutt­ur á bráðamót­töku eft­ir að eld­ur kom upp í fjöl­býl­is­húsi við Brekku­götu á Ak­ur­eyri á þriðja tím­an­um í dag. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá slökkviliði Ak­ur­eyr­ar kviknaði í elda­vél í  kjall­ara­í­búð í fjög­urra hæða fjöl­býl­is­húsi við göt­una. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Ólaf­ur Stef­áns­son­, slökkviliðsstjóri á Ak­ur­eyri, segir það mikla mildi að ekki hafi farið verr. Hann bætir við að Alexandra Guðlaugsdóttir, ung móðir á efstu hæð hússins, og dóttir hennar, hafi verið í mikilli hættu en náð að koma sér mjög fljótt út.

Alexandra segir í samtali við RÚV að hún hafi skyndilega fundið mikla brunalykt en hafi ekki séð nein ummerki elds í fyrstu. „Ég er efst upp þannig að það er enginn reykur kominn þangað. Svo hleyp ég niður og þá er komið fullt af reyk í íbúðina á neðri hæðinni,“ segir hún.

Hún segist hafa byrjað á því að banka á neðri hæðinni en þegar enginn hafi svarað hafi hún hlaupið upp og náð í dóttur sína og hlaupið út með hana. Viðtal við Alexöndru má sjá á vef RÚV með því að smella hér.

Allt er ónýtt í að minnsta þremur íbúðum hússins.

Sambíó

UMMÆLI