Milljarður rís á Akureyri

Milljarður rís á Akureyri

Dansbyltingin Milljarður rís fer fram í Hofi á Akureyri þann 14. febrúar klukkan 12.15-13.00. Þetta er í áttunda sinn sem viðburðurinn er haldinn hér á landi og fólk á öllum aldri kemur saman og dansar fyrir heimi þar sem allir, óháð kyni og kynhneigð, njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. 

Það er óhugnanleg staðreynd að 1 af hverjum 3 konum um heim allan verður fyrir kynbundnu ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni, það er um ein milljón kvenna! Við mjökumst þó hægt í rétta átt og það verður ljósara með hverju árinu sem líður að ofbeldi í garð kvenna verður ekki lengur liðið. Í ár verður kastljósinu beint að stafrænu ofbeldi ofbeldi sem er sívaxandi vandamál sem Ísland og önnur lönd hafa verið sein að grípa til aðgerða gegn. 

Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir setur viðburðinn í Hofi með stuttu erindi og mun plötusnúðurinn DJ Vélarnar halda uppi stuðinu ásamt söngkonunni Eik Haraldsdóttur. Viðburðurinn fer fram í salnum Hamri í Menningarhúsinu Hofi. 

Í fyrra var viðburðurinn haldinn í yfir 200 löndum víðs vegar um heiminn, m.a. í Argentínu, Sjíle, Mexíkó, Bandaríkjunum, Kanada, Spáni, Tyrklandi, Ástralíu, Hong Kong og Filipseyjum. Á Íslandi kom fjöldi fólks saman á öllum aldri um allt land og var dansað gegn kynbundnu ofbeldi í Reykjavík, Akureyri, Neskaupstað, Seyðisfirði, Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Hómavík, Sauðárkróki og Selfossi. Samtakamátturinn var allsráðandi.

UMMÆLI

Sambíó