Minjasafnið tekur að sér rekstur Iðnaðarsafnsins á Akureyri

Minjasafnið tekur að sér rekstur Iðnaðarsafnsins á Akureyri

Í gær var undirritað samkomulag milli meirihluta stofnaðila Iðnaðarsafnsins á Akureyri, sem eru Akureyrarbær, Eining-Iðja og Byggiðn – félag byggingamanna, um að fela Minjasafninu á Akureyri að annast rekstur Iðnaðarsafnsins næstu þrjú árin. Samkvæmt samkomulaginu gerir Akureyrarbær þjónustusamning við Minjasafnið um verkefnið og var sá samningur undirritaður við sama tækifæri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins þar sem segir að meginmarkmið samkomulagsins og samningsins séu meðal annars að:

  • Festa Iðnaðarsafnið í sessi og efla það til framtíðar
  • Viðhalda og þróa áfram það merka frumkvöðlastarf sem Iðnaðarsafnið og aðstandendur þess hafa staðið fyrir frá stofnun þess
  • Tryggja áframhaldandi samfellu í starfsemi Iðnaðarsafnsins, öruggan rekstur og varðveislu safngripa
  • Nýta fagþekkingu og reynslu starfsmanna Minjasafnsins í þágu Iðnaðarsafnsins

„Akureyrarbær greiðir árlega 12 m.kr. til verkefna sem kveðið er á um í samningnum, leggur til núverandi húsnæði Iðnaðarsafnsins og greiðir rekstrarkostnað þess. Rekstur Iðnaðarsafnsins verður samþættur rekstri Minjasafnsins, þannig stýrir safnstjóri Minjasafnsins þeim báðum og allt starfsfólk mun koma að rekstri, sýningarhaldi og miðlun á Iðnaðarsafninu. Stjórn Minjasafnsins ber í samræmi við það ábyrgð á daglegum rekstri Iðnaðarsafnsins. Stjórn Iðnaðarsafnsins starfar áfram á samningstímanum en í breyttu hlutverki. Stjórnin tekur þátt í stefnumótun og verður í ráðgjafar- og eftirlitshlutverki gagnvart verkefnum þjónustusamningsins,“ segir í tilkynningunni.

Safnið verður í fyrstu opið um helgar klukkan 13-16 á meðan starfsfólk gerir breytingar á sýningum. Stefnt er að því að safnið verið opið daglega klukkan 13-16 frá og með sumardeginum fyrsta og klukkan 11-17 frá 1. júní næstkomandi.

Samkomulagið undirrituðu Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, og Heimir Kristinsson varaformaður Byggiðn sem eru á myndinni hér að ofan. Samkomulagið undirritaði rafrænt Tryggvi Jóhannsson varaformaður Einingar-iðju.

UMMÆLI

Sambíó