Origo Akureyri

Minningarbekkur um Magnús og Bangsa

Minningarbekkur um Magnús og Bangsa

Nú á dögunum var Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri færður bekkur til minningar um þá félaga Magnús og kisann hans Bangsa, fyrrum íbúa á Hlíð. Þetta kemur fram frétt á vef Hlíðar.

Þar segir um Magnús og Bangsa: „Magnús Ágústsson var fæddur árið 1928 á Ólafsfirði. Hann lærði húsasmíði hjá föður sínum og byggingarverkfræði í Noregi. Magnús starfaði í mörg ár hjá Akureyrarbæ. Magnús var bæði notandi í dagþjálfun og síðar íbúi á Hlíð. Hann og kisinn hans Bangsi voru duglegir að fara út að ganga saman og könnuðust margir í hverfinu við þá félaga.  Það voru dætur hans þrjár sem færðu heimilinu þessa fallegu gjöf fyrir hönd systkinanna fimm. Bekkurinn er staðsettur á göngustígnum við Aspar- og Beykihlíð þar sem þeir félagar áttu heima. Hjúkrunarheimilið þakkar kærlega fyrir þessa góðu gjöf og vonast til þess að sem flestir sem eiga leið hjá nýti sér þennan fallega bekk.“

Netsprengja NTC
Sambíó

UMMÆLI