Moli heimsótti 46 staði í sumar

Moli heimsótti 46 staði í sumar

Siguróli Kristjánsson, eða Moli eins og hann er kallaður, hefur lokið verkefninu „Komdu í fótbolta með Mola“ í ár.  Í sumar heimsótti Moli 46 sveitarfélög um allt land. Hann fór meðal annars til Víkur í Mýrdal, Vestmannaeyja, í Garð, á Stykkishólm, til Súðavíkur og Dalvíkur.

Verkefnið er samstarfsverkefni KSÍ og Landsbankans og felur í sér heimsóknir til minni sveitarfélaga um land allt. Moli hefur umsjón með verkefninu og hann setur upp skemmtilegar og fjölbreyttar fótboltabúðir á hverjum stað til að efla áhuga iðkenda og styðja við bakið á knattspyrnustarfinu á staðnum.

Moli er Akureyringur í húð og hár og lék um árabil með Þór, auk þess sem hann hefur þjálfað hjá félaginu í mörg ár. Þess má einnig geta að hann á tvo A landsleiki að baki.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó