Myndband: Föðmuðu Ráðhúsið á Akureyri

Nemendur Oddeyrarskóla tóku upp á því í morgun að faðma Ráðhús Akureyrarbæjar í tilefni alþjóðlegs dags gegn kynþáttamisrétti. Nemendur skólans eru um 200 og náðu ekki utan um skólabygginguna og því var ákveðið að mynda hring í kringum Ráðhúsið sem er í grennd við skólann.

Alls­herj­arþing Sam­einuðu þjóðanna valdi á sín­um tíma 21. mars sem alþjóðadag gegn kynþáttam­is­rétti, til að minn­ast 69 mót­mæl­enda sem voru myrt­ir þenn­an dag árið 1960, er þeir tóku þátt í mót­mæl­um gegn aðskilnaðar­stefnu stjórn­valda í Suður-Afr­íku.

Akureyrarbær hlóð upp myndbandi á Facebook síðu sinni þar sem sést þegar nemendurnir mynda hring í kringum Ráðhúsið til að faðma það.

UMMÆLI

Sambíó