Myndlistarsýning Péturs Magnússonar í Einkasafninu Eyjafjarðarsveit

Myndlistarsýning Péturs Magnússonar í Einkasafninu Eyjafjarðarsveit

Pétur Magnússon er fyrsti gestur Einkasafnsins í Eyjafjarðarsveit sumarið 2022. Sýning hans, Ávaxtamauk, verður opin 18. til 19. júní og 25. til 26. júní frá klukkan 14.00 til 18.00. Sýningin er einnig opin eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 7829015.

Pétur fæddist í Reykjavík árið 1958. Eftir menntaskóla fór hann í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan á Accademia delle belle Arti Bologna og að lokum í Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam. Hann var búsettur í Amsterdam til ársins 2003, en flutti þá til Íslands. Í Hollandi tók hann þátt í stofnun listaverkabókabúðarinnar Boekie Woekie sem jafnframt er gallerí og útgefandi. Hann starfaði með fyrirtækinu fyrstu árin. Pétur lærði málun á Ítalíu og grafík í Hollandi. Með tímanum hefur hann fært sig yfir í ljósmyndir og skúlptúr, oft lágmyndir. Verk hans láta reyna á skynjunina og ögra henni meðan þau bjóða upp á nýja möguleika til að skynja umhverfið. Efni og fjarvídd spila oft stórt hlutverk í að eiga við umhverfið á heimspekilegan og skoplegan máta.

Sýningarstjóri er Aðalsteinn Þórsson.

Sumarlistamenn Einkasafnins

Þriðja sumarið í röð býður Einkasafnið-umhverfislistaverk upp á sýningarröð listafólks sem hefur verið boðið til dvalar í safninu og sýnt afrakstur vinnu sinnar í safnhúsinu og umhverfis það. Listafólkið hefur unnið út frá þeim áhrifum sem það hefur orðið fyrir meðan á dvölini stendur. Pétur Magnússon er sjötti sumarlistamaðurinn sem sýnir í safninu. Á undan honum hafa listamennirnir: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Arna G. Valsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson,  Joris Rademaker og Kristín Reynisdóttir dvalið og sýnt í safninu. Einkasafnið er sýningastaður í gróðurvin í lækjardragi með skoppandi læk, 10 km sunnan Akureyrar. Þar er boðið upp á einveru og takmarkuð þægindi í litlu húsi. 

Einkasafnið er verkefni myndlistamannsinns Aðalsteins Þórssonar. Það hýsir safn Aðalsteins „á því sem verður eftir“ af eigin neyslu. Með því er reynt að gefa eins heillega mynd af fyrirferð einstaklingsins í umhverfinu og hægt er. Leitast er við að það sé sjálfbær eining hvað varðar orkuöflun og meðferð úrgangs. Með það að markmiði að vera í jafnvægi við náttúru og umhverfi. Söfnunin hófst 2001, Safnið hefur verið í núverandi húsnæði frá 2018.  

Einkasafnið stendur við syðri enda þjóðvegs 822 Kristnesvegar uþb. 10 km sunnan Akureyrar. Vefsíða: www.steini.art


UMMÆLI