Prenthaus

Nespresso hefur opnað verslun á Akureyri

Nespresso hefur opnað verslun á Akureyri

Nespresso hefur opnað verslun á Glerártorgi Akureyri. Hún bætist þá við verslanir sem fyrir eru í Kringlunni, Smáralind og á netinu. Verslunin er staðsett á ganginum við aðalinngang verslunarmiðstöðvarinnar.

„Það er von okkar að með því að opna verslun á Akureyri náum við betur að þjónusta íbúa á Norðurlandi. Verslunin hefur verið opin í nokkra daga til að þjálfa starfsfólk, svo kölluð “soft-opening” og hafa viðtökurnar verið mjög góðar nú þegar. Í dag opnar hún svo formlega og munum við að sjálfsögðu vera með opnunartilboð á Glerártorgi þar sem allar kaffivélar og mjólkurflóara verða á 20% afslætti,“ segir Ívar Sigurjónsson framkvæmdastjóri Nespresso á Íslandi.

Um Nespresso

Saga Nespresso byrjaði á einfaldri en byltingakenndri hugmynd sem var sú að gera öllum kleift að búa til fullkominn espresso líkt og þjálfaður kaffibarþjónn.

Nespresso leitast við að bjóða kaffiunnendum allsstaðar í heiminum upp á fullkomna upplifun þegar kemur að kaffi en vörumerkið stendur fyrir gæði og nýsköpun. Nespresso byggir metnað sinn á að bjóða hágæða kaffi og kaffivélar sem eru einfaldar og þægilegar í notkun, ásamt aukahlutum og sérsniðna þjónustu.

Nespresso er leiðandi á markaði í framleiðslu á hágæða kaffi í hylkjum, sem gert er úr besta mögulega hráefni. Álið í hylkjunum er 100% endurvinnanlegt og allstaðar þar sem viðskiptavinir Nespresso á Íslandi kaupa eða fá afhent kaffi er hægt að skila notuðum hylkjum til endurvinnslu.

 Nespresso er með höfuðstöðvar í Lausanne í Sviss og starfar í 70 löndum, rekur yfir 800 verslanir með um 13.900 starfsmönnum.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Nespresso: www.nestle-nespresso.com.

Sambíó

UMMÆLI