Prenthaus

Niceair flýgur til Edinborgar og Berlínar í haust

Niceair flýgur til Edinborgar og Berlínar í haust

Flugfélagið Niceair hefur kynnt þriggja nátta borgarferðir frá Akureyri til Edinborgar og Berlínar í haust. Flogið verður til Edinborgar 20. október og 17. nóvember. Flogið verður til Berlínar 10. nóvember og 1. desember.

„Berlín er rík af sögu, fjölbreytileika og menningu. Mikið úrval er af verslunum og veitingastöðum frá öllum heimshornum og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Edinborg er ævintýraleg borg sem gaman er að dveljast í. Stutt flug, einstaklega fallegur arkitektúr, skemmtilegir markaðir og frábærar verslunargötur þar sem hægt er að gera góð kaup. Jólamarkaðirnir í Berlín og Edinborg gefa einstaklega upplifun og koma þér svo sannarlega í jólaskap,“ segir í tilkynningu Niceair.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó