Niceair og Flugfreyjufélag Íslands undirrita kjarasamning

Niceair og Flugfreyjufélag Íslands undirrita kjarasamning

Norðlenska flugfélagið Niceair og Flugfreyjufélag Íslands hafa gert með sér kjarasamning fyrir flugfreyjur og flugþjóna félagsins. Samningurinn gildir til 1. júní 2024.

Í tilkynningu segir að það séu ekki algildir kjarasamningar um störf flugfreyja og flugþjóna hér á landi og því þarf að semja við hvert flugfélag fyrir sig.

„Það er einstaklega ánægjulegt að hið nýja flugfélag leggi metnað í að ganga frá kjarasamningum og verja þannig réttindi og kjör síns starfsfólks. Með því móti er líklegra að hæft og gott starfsfólk fáist til starfa til lengri tíma og haldnar eru í heiðri vinnureglur á íslenskum vinnumarkaði,“ segir á vef ASÍ.

„Það er með gleði og bjartsýni sem við hjá FFÍ óskum Niceair til hamingju með að hafa tekið á loft. FFÍ fagnar því að Niceair hafi gengið til viðræðna og lokið kjarasamningi við félagið með árangursríkum hætti og bjóðum við nýja félagsmenn hjartanlega velkomna. Viðræðuferlið hefur í alla staði verið farsælt og gott og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs,“ segir Guðlaug Líney Jóhannsdóttir formaður FFÍ

„Ég vil óska nýju flugfélagi til hamingju með heilladrjúg fyrstu skref og óska þeim velfarnaðar í framtíðinni. Það er ljóst að það á ekki að tjalda til einnar nætur og það er góð tilfinning að geta mælt með nýju flugfélagi við viðskiptavini, fjárfesta og starfsfólk,“ segir Drífa Snædal forseti ASÍ.

UMMÆLI