Niceair og Umhyggja í samstarf

Niceair og Umhyggja í samstarf

Norðlenska flugfélagið Niceair og Umhyggja – félag langveikra barna hafa hafið samstarf. Niceair mun veita langveikum börnum sérstök kjör af utanlandsferðum frá Akureyri.

„Til að létta undir með fjölskyldum langveikra barna og auðvelda þeim ferðalög erlendis býður Niceair langveikum börnum sem eru í Umhyggju eða aðildarfélögum Umhyggju frítt flug til allra áfangastaða sinna og foreldrum þeirra 50% afslátt fljúgi þeir með barninu,“ segir í tilkynningu. 

Áfangastaðir Niceair í sumar eru Kaupmannahöfn, Tenerife og London. Veturinn 2022-2023 verður flogið til Kaupmannahafnar, London og Manchester.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó