Niðurstaða í Leitinni að Grundargralinu

Niðurstaða í Leitinni að Grundargralinu

Grenndargralið rekur sögu Gunnlaugs Briem, Valgerðar konu hans, afkomenda og samferðamanna í hlaðvarpsþáttunum Leitin að Grundargralinu. Ætlunin er að komast nær sannleikanum um gralið á Grund. Silfurgralið er sagt hafa verið í fórum manns sem kom til Íslands í upphafi 19. aldar og segir sagan að huldumaðurinn hafi fært sýslumanninum gralið að gjöf. Munnmælasagan hefur gengið meðal Eyfirðinga í 200 ár án þess að nokkuð hafi komið fram sem varpar ljósi á málið.

Þrír síðustu þættirnir eru komnir í loftið. Er sagan um Grundargralið munnmælasaga eða sönn? Ef gralið er til, hvar skyldi það þá vera? Allir þættirnir tíu eru nú aðgengilegir á streymissíðu Grenndargralsins https://soundcloud.com/grenndargral/sets/leitin-a-grundargralinu


UMMÆLI