Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Ný frístundaverslun opnar á Glerártorgi

Ný frístundaverslun opnar á Glerártorgi

Krakkasport ehf. mun opna verslun á Glerártorgi í byrjun nóvember. Krakkasport byrjaði sem netverslun fyrir rúmu ári en síðan í apríl hefur lítil verslun verið rekin að Njarðarnesi 6 samhliða vefversluninni.

Það kannast margir við verslunina Krakkasport sem verið hefur starfrækt á netinu og í Njarðarnesi. Rekstaraðilar Krakkasports ætla að opna á Glerártorgi í nóvember frístundaverslun með öllu því sem Krakkasport hefur boðið uppá og meira til og mun nafnið samhliða því breytast í Hobbý og Sport.

„Það er gaman að fá skemmtilega frístundaverslun í húsið og munum við segja meira frá opnun hennar á næstu dögum ásamt því að segja frá fleiri breytingum og viðbótum sem von er á í verslunarmiðstöðinni,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, markaðsstjóri Glerártorgs.

Eins og nafnið gefur til kynna var aðaláherslan í upphafi vörur fyrir börn en vöruúrval hefur vaxið og orðið fjölbreyttara eftir því sem á líður. Nú sérhæfir verslunin sig í vörum sem viðkoma frístundum fyrir alla aldurshópa.

UMMÆLI