Origo Akureyri

Ný göngu- og hjólabrú yfir Glerá í burðarliðnum

Ný göngu- og hjólabrú yfir Glerá í burðarliðnum

Frumdrög að göngu- og hjólabrú yfir Glerá, frá Skarðshlíð að Glerártorgi hafa verið lögð fram. Þetta kemur fram í Vikublaðinu.

Þar segir að Umhverfis-og mannvirkjaráð Akureyrarbæjar hafi samþykkt að þróa áfram hönnun og skoða jafnframt að setja upp gönguleið undir Glerárbrú að norðanverðu. Jónas Valdimarsson hjá Akureyrarbæ segir í samtali við Vikublaðið að frumtillögur að brú hafi verið gerðar til að unnt sé betur að átta sig á verkefninu, umfangi þess og kostnaði.

Jónas segir að lokaútkoman muni væntanlega breytast í ferlinu en næstu skref í málinu séu að hanna brú og bjóða verkið út.

„Ætlunin er að það gerist á þessu ári en framkvæmdir við verkefnið verði árið 2024,“ segir Jónas við Vikublaðið og bætir við að þetta verkefni hangi saman við stofnstígaskipulag Akureyri sem samþykkt var fyrir um tveimur árum.

Nánar má lesa um málið í Vikublaðinu og á vef Vikublaðsins með því að smella hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó