Origo Akureyri

Ný yfirbygging á Töfrateppið í Hlíðarfjalli

Ný yfirbygging á Töfrateppið í Hlíðarfjalli

Starfsmenn skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli hafa lokið við að setja saman 63ja metra yfirbyggingu úr gegnsæjum einingum á hið svokallaða Töfrateppi. Yfirbyggingin myndar eins konar göng utan um færibandið og skýlir þeim sem það nota fyrir veðri og vindum. Þetta kemur fram á vef Akureyrabæjar.

„Töfrateppið er ein vinsælasta skíðabraut Hlíðarfjalls. Það kostar ekkert að nota færibandið og það er mikið notað af þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á skíðum, jafnt ungum sem öldnum og einnig nota nemendur skíðaskólans þessa þægilegu brekku. Um leið og yfirbyggingin veitir iðkendum skjól á köldum vetrardögum þá er hún líka vörn fyrir lyftubúnað meðan stormar og óveður ganga yfir fjallið. Í göngunum er LED-lýsing sem gefur lyftunni skemmtilegt yfirbragð. Framkvæmdirnar fólu einnig í sér að skipt var um færibands-teppið og öll lyftan var yfirfarin,“ segir í tilkynningu.

Sambíó

UMMÆLI