Nýir klúbbar hjá félagsmiðstöðvunum á Akureyri

Síðuskóli á Akureyri

Síðuskóli á Akureyri

Félagsmiðstöðvar Akureyrar eða FÉLAK munu bjóða upp á nýja klúbba fyrir börn á miðstigi grunnskólanna. Klúbbarnir Stjáni og Stella eru kynjaskiptir klúbbar fyrir krakka í 7. bekk og klúbburinn Skipper verður í boði fyrir krakka í 5. og 6. bekk.

Klúbbarnir eru opnir öllum nemendum í grunnskólum Akureyrar sem vilja kynnast fleirum og fara í allskonar leiki í félagsmiðstöðinni. Starfið miðar að því að veita börnum öruggt, þægilegt og skemmtilegt umhverfi til að njóta sín í hópi annarra barna undir handleiðslu fullorðinna. Farið er í allskonar leiki til að þjálfa þáttakendur í jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum ásamt því að efla sjálfstraust þeirra og öryggi í framkomu.

Með þátttöku í klúbbnum fá börnin tækifæri á að kynnast félagsmiðstöðinni og hafa þannig forskot þegar á elsta stig grunnskólans er komið því þá er félagsmiðstöðin þeim ekki ókunn og þau vonandi á heimavelli.

Þátttaka í klúbbnum er ókeypis. Skráningu líkur 16. janúar og takmarkaður fjöldi kemst að í hvern klúbb. Til að fá nánari upplýsingar er hægt að senda póst á netfangið fanneykr@akureyri.is  eða olafiag@akureyri.is

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó