KIA

Nýja stólalyftan fær nafnið FjallkonanLjósmynd: Óskar Wild Ingólfsson

Nýja stólalyftan fær nafnið Fjallkonan

Ákveðið hefur verið að nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli hljóti nafnið Fjallkonan. Nafnið er þannig til komið að lyftan liggur upp á hæð sem kölluð hefur verið Fjallkonuhæð og að baki hennar er Fjallkonuskál undir Hlíðarfjallsbrúninni. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

„Að auki er fjallkonan tákn Íslands og íslenskrar náttúru og nýja lyftan gerir gestum kleift að njóta útsýnis og fegurðar hennar en á björtum dögum er mjög víðsýnt úr fjallinu og auðveldlega má sjá til Herðubreiðar í austri. Fyrir marga þá sem af ýmsum ástæðum eiga erfitt með að ganga á fjöll opna stólalyfturnar saman leið til að njóta náttúrunnar og þess frelsis og sérstöku upplifunar sem í fjallgöngum felast,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segir í tilefni af nafngiftinni: „Það er afar ánægjulegt að ljúka fyrsta vetrinum sem nýja lyftan er í rekstri á að gefa henni þetta fallega nafn. Við þökkum öllum fyrirtækjunum á Akureyri sem komu að verkefninu og Vinum Hlíðarfjalls fyrir óeigingjarnt framlag og frumkvæði sem varð til þess að Fjallkonan varð að veruleika.. Á leiðinni höfum við tekist á við ýmsar áskoranir en saman höfum við sigrast á þeim. Nýja lyftan hefur þegar sannað gildi sitt, svæðið ber nú mun fleiri gesti og fjölbreytileiki í notkun þess hefur aukist til muna. Við sjáum ekki enn fyrir endann á möguleikunum sem í því felast.“

Í tilefni tímamótanna og nýja nafnsins verður frítt í Hlíðarfjall klukkan 13 til 16 á morgun laugardag og þá geta þeir sem enn eiga eftir að prófa brugðið sér nokkrar ferðir upp undir brún og aðrir skotist lokaferðir vetrarins.

Þá verður gestum og gangandi boðið upp á grillaðar pylsur á Skaflinum við Skíðastaði milli kl. 13 og 14 á meðan birgðir endast.

Sambíó

UMMÆLI