Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli gangsett á morgun

Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli gangsett á morgun

Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli verður gangsett um helgina og ræst klukkan 13 á morgun, laugardaginn 19. febrúar. Lyftan verður síðan í gangi á opnunartíma skíðasvæðisins næstu daga en ráðgert er að formleg vígsluathöfn verði haldin síðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hlíðarfjalli

„Á morgun er spáð köldu en björtu hægviðri og verður lyftan því gangsett við kjöraðstæður í Fjallinu. Mikil eftirvænting er á meðal skíðafólks og má búast við að þónokkur biðröð myndist við nýju lyftuna enda margt fólk komið norður til að njóta útiveru og skíðamennsku á meðan vetrarfrí eru í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.

Lengd nýju lyftunnar er 1.160 metrar og fallhæð 374 metrar. Lyftan ber 1.650 manns á klukkustund og tekur um 8 mínútur að komast á leiðaranda. Lyftan er framleidd af Doppelmayr, var keypt notuð frá Austurríki og sett upp af fyrirtækinu Pro-Alpin sem sérhæfir sig í kaupum og sölu á notuðum lyftum. Stór hluti búnaðarins í lyftunni hefur verið endurnýjaður, þar á meðal tölvustýring hennar sem er glæný og er allur stjórnbúnaður eins og um nýja lyftu sé að ræða.

Vegna aðstæðna og mikils bratta svo hátt í fjallinu, verður lyftan eingöngu notuð þegar skyggni er gott og snjóflóðahætta í lágmarki.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó