Nýr götusópur tekinn í notkun á Akureyri: „Öflugt tæki í baráttunni gegn svifryki“

Nýr götusópur tekinn í notkun á Akureyri: „Öflugt tæki í baráttunni gegn svifryki“

Nýr götusópur í eigu Akureyrarbæjar hefur verið tekinn í notkun. Sópnum er ætlað að vinna gegn svifryksmengun í bænum. Þetta kemur fram á vef bæjarins í dag.

Þar segir að götusópurinn sé af gerðinni Schmidt 660 og að hann sé fyrsta flokks tæki. „Hann er með góðum tromlukústi, sjö rúmmetra safnkassa og getur tekið vatn inn á sig. Hliðarsópur er stillanlegur og getur sópað alveg upp að kanti sem er mikill kostur. Þá er sogkraftur tækisins óvenjumikill. Með þessu tæki er hægt að hreinsa göturnar á skilvirkan og vandaðan hátt og stuðla þannig að fallegra umhverfi og hreinna lofti.,“ segir á vef bæjarins.

Sópurinn er á metanbíl í samræmi við umhverfis- og samgöngustefnu bæjarins. Fjárfestingin er liður í aðgerðum Akureyrarbæjar til að stemma stigu við svifryksmengun sem mælist reglulega of mikil. Rík áhersla er lögð á þetta verkefni um þessar mundir og er meðal annars unnið að greiningu á efnasamsetningu og uppruna svifryks á Akureyri.

„Vonir standa til að með samhentu átaki bæjarins við að hreinsa betur göturnar og íbúa við að draga úr bílaumferð og notkun nagladekkja megi ná góðum árangri í baráttunni við svifrykið.“

Götusópurinn var boðinn út síðasta vor og er keyptur af fyrirtækinu Aflvélum ehf. fyrir 40 milljónir króna. Hann kom til landsins á dögunum og er nú kominn á götur Akureyrar þar sem hann verður við stífa vinnu á næstunni. Vorverkin eru enda að hefjast og einn liður í því er að hreinsa bæinn og koma honum í sumarbúninginn.

UMMÆLI

Sambíó