Nýr samningur Akureyrarbæjar og Félags eldri borgara á AkureyriKarl Erlendsson formaður EBAK og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri að lokinni undirritun samningsins.Mynd: Akureyri.is

Nýr samningur Akureyrarbæjar og Félags eldri borgara á Akureyri

Í gær var undirritaður nýr samningur Akureyrarbæjar og Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) sem gildir til ársloka 2025. Frá þessu er greint á vef bæjarins í dag.

Í tilkynningu Akureyrarbæjar segir að með samningnum taka Akureyrarbær og EBAK höndum saman um að tryggja eldri borgurum á Akureyri aðgang að eins góðu félags- og tómstundastarfi og þörf er á hverju sinni. Samningurinn felur í sér að Akureyrarbær leggur EBAK til húsnæði og rekstur þess, starfsfólk vegna starfs í félagsmiðstöðvum og rekstrarstyrk að upphæð 5 milljónir króna á samningstímanum. EBAK skipuleggur ýmsa starfsemi í félagsmiðstöðvum eldri borgara og virkjar frumkvæði þeirra til ánægjulegrar samveru.

„Markmið samningsins er að tryggja og viðhalda andlegri, félagslegri og líkamlegri færni þeirra til að njóta efri áranna eftir vilja og getu hvers og eins. Félags- og tómstundastarfi fyrir eldri borgara á vegum Akureyrarbæjar er fyrst og fremst ætlað að skapa þær ytri aðstæður sem þarf til að efla frumkvæði, sjálfstæði og áhuga og stuðla að meiri virkni og þátttöku eldri borgara,“ segir í tilkynningu bæjarins.

Félagsmiðstöðvar eldri borgara í Bugðusíðu og Víðilundi eru opnar allt árið en opnunartími og þjónustuframboð er þó minna í sniðum yfir sumartímann.

Sambíó

UMMÆLI