Nýtnivika á Akureyri

Nýtnivika á Akureyri

Á laugardaginn hófst nýtnivika á Akureyri. Um er að ræða samevrópskt átak sem ætlað er að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs.

Það má til að mynda gera með því að lengja líftíma hluta, samnýta hluti og stuðla almennt að því að hlutir öðlist framhaldslíf frekar en að enda sem úrgangur.

Á Akureyri verða ýmsir viðburðir haldnir í vikunni sem ætlað er að stuðla að vitundarvakningu. Lögð verður áhersla á að draga úr, endurnota og endurvinna.

Dagskrá Nýtnivikunnar á pdf-formi.

Dagskrá Nýtnivikunnar á Facebook.


UMMÆLI

Sambíó