Origo Akureyri

Nýtt færni- og hermisetur væntanlegt við HALjósmynd: Háskólinn á Akureyri

Nýtt færni- og hermisetur væntanlegt við HA

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skrifuðu á dögunum undir samkomulag þess efnis að fjármagna uppbyggingu á nýju færni- og hermisetri við Háskólann á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands. Fjárveitingin varðar 200 miljónir króna og styður hún við markmið skólans um nemendafjölgun, sérstaklega fjölgun hjúkrunarfræðinema. Stefnt er að því að nýtt færni- og hermisetur taki til starfa haustið 2026.

Í áðurnefndri tilkynningu segir að færni- og hermikennsla felist í að herma, með tæknibúnaði eða leiknum sjúklingum, eftir raunverulegum aðstæðum, aðgerðum eða inngripum í öruggu umhverfi. Þetta er gert með leiðbeinanda, án þess að heilsu sjúklings sé stefnt í hættu. Áslaug Arna segir að ein helsta hindrunin í námi í heilbrigðisvísindum hafi verið klíníska námið, þ.e. starfsnámið á sjúkrahúsunum: ,,Því miður er það svo að sjúkrahúsin hafa hvorki aðstöðu né mannskap til að taka á móti fleiri nemendum í heilbrigðisvísindum. Færni- og hermisetrinu er ætlað að leysa þann vanda og við bindum einnig vonir við að það efli símenntun heilbrigðisstétta og ýti þannig undir innleiðingu nýsköpunar og tækninýjunga í heilbrigðisþjónustu.”

Í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að nýtt færni- og hermisetur auki gæði og tækifæri til heilbrigðisnáms á landsbyggðinni. Með stækkun á kennsluhúsnæði gefst færi á að taka við fleiri nemendum og aldrei hafa fleiri nemendur stundað staðnám við Háskólann á Akureyri.  Að sögn rektors Háskólans á Akureyri mun færni- og hermisetur sem komið er í fulla notkun koma til móts við þá fjölgun sem nú þegar er orði og gefa möguleika á enn frekari fjölgun nemenda.

„Þegar færni og hermi setrið er komið í notkun gefur það okkur möguleika á að fjölga stúdentum enn frekar, jafnvel úr þeim ríflega 300 sem nú stunda nám í hjúkrunarfræði við HA upp í allt að 400,“ segir Sigríður Sía Jónsdóttir deildarforseti, Hjúkrunarfræðideildar HA í tilkynningu frá Háskólanum.

Uppbygging færni- og hermiseturs fellur undir forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og heilbrigðisráðherra lögðu sameiginlega fram til að mæta aukinni mannaflaþörf í heilbrigðiskerfinu og efla heilbrigðismenntun. Í samningi um verkefnið kemur fram að mikilvægt sé að bæði í Reykjavík og á Akureyri sé til staðar grunnbúnaður fyrir færni- og hermikennslu helstu heilbrigðisstétta. Þá er áhersla lögð á árangursríka miðlun þekkingar með nýstárlegum og skilvirkum kennsluaðferðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri.

UMMÆLI

Sambíó