Nýtt kaffihús á Glerártorgi

Nýtt kaffihús á Glerártorgi

Nú geta kaffiþyrstir gestir Glerártorgs á Akureyri glaðst þar sem svokallað PopUp kaffihús hefur opnað í verslunarmiðstöðinni. Kaffihúsið er staðsett þar sem Kaffi Torg var áður til húsa.

„Fjöldi ljúffengra kaffidrykkja úr hágæðakaffi frá Te & Kaffi verða á boðstólnum auk fjölda brauðrétta og bakkelsis,“ segir í tilkynningu frá Glerártorgi.

Eigendur kaffihússins bjóða uppá ýmsar tækninýjungar þar sem viðskiptavinum standa til dæmis til boða snertilausar lausnir við pöntun en á öllum borðum er stafrænn matseðill og hægt er að borga með snjalltæki.

Opnunartímar kaffihússins verða sem hér segir:

Virka daga 10:00-19:00
Laugardaga 10:00-17:00
Sunnudaga 13:00-17:00

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó