Oddfellowar gerðu upp íbúðir fyrir aðstandendur heimilisfólks Öldrunarstofnunar Akureyrar

Svefnherbergi í annarri íbúðinni. Mynd:akureyri.is

Oddfellowreglan hefur gert upp að fullu tvær raðhúsaíbúðiur við Öldrunarstofnun Akureyrarbæjar, sem ætlaðar eru aðstandendum heimilisfólks stofnunarinnar svo og aðstandendum sjúklinga Sjúkrahússins á Akureyri, sem þurfa að dveljast á Akureyri vegna nákomins ættingja. Auk þess hefur Oddfelowreglan keypt allan nauðsynlegan húsbúnað og innanstokksmundi í íbúðirnar, þannig að þær eru nú tilbúnar til notkunar.

Ákveðið var að ráðst í þetta verkefni í tilefni 100 ára afmæli Oddfellowstúkunnar Sjafnar á Akureyri í tilefni 100 ára afmælis hennar og Oddfelowstarfs á Akureyri.

Fimm stúkur eru nú starfandi á Akureyri og tóku þær allar þátt í verkefninu ásamt Líknar- og þróunarsjóði Oddfellowreglunnar á Íslandi.

Einar Hjartarson yfirmeistari Sjafnar segir í samtali við Akureyri.is afar ánægjulegt að afhenda íbúðirnar á þessum tímamótum: „Oddfellowreglan hefur frá upphafi verið öflugur liðsmaður til góðra verka, hvort sem um er að ræða mannræktarstarf innan hennar eða framlög til margvíslegra líknarmála. Mörg líknarverkefni eru unnin hérna í heimabyggð á hverju ári, en þetta afmælisverkefni er fjárhagslega mun stærra og viðameira en flest. Ég er sannfærður um að íbúðirnar koma að góðum notum og styrki innviði samfélagsins.“

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri veitti íbúðunum viðtöku. „Öldrunarheimilin og málefni eldra fólks á Akureyri, hafa notið magháttaðs stuðnings Oddfellowreglunnar á undanförum árum og áratugum,“ sagði Eiríkur Björn. „Slíkur stuðningur og mannkærleikur í verki, er ómetanlegur, bæði sem bakland og drifkraftur framfara. Stuðningurinn birtist m.a. í skýrum áherslum á mannúðar-, líknar og velferðarmálum og er á þann hátt vegvísir fyrir aðra þegar kemur að velferðarmálum samfélagsins í heild. Með þessum tveimur íbúðum er stigið mikilvægt og stórt framfaraskref í að efla og bæta aðbúnað fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra sem þurfa að leita sér heilbrigðisþjónustu og meðferðar á Akureyri. Einn mikilvægur hluti þessa er líknarmeðferð þar sem leitast er við að bæta líðan og lífsgæði þeirra sem eru með lagvinna og lífsógnandi sjúkdóma. Með endurgerð íbúðanna við Hlíð sem Oddfellowstúkan Sjöfn á Akureyri hefur haft frumkvæði að er stigið mikilvægt framfaraskref í þjónustu við aldraða og sjúka á Akureyri. Fyrir þetta erum við afar þakklát,“ sagði Eiríkur á Akureyri.is

Sambíó

UMMÆLI