Oddur Gretarsson til Balingen

Mynd af Facebook síðu Odds

Handboltakappinn Oddur Gretarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska 1.deilarliðið Balingen sem Rúnar Sigtryggson þjálfar. Oddur, sem verður 27 ára á árinu leikur nú með Emsdetten í þýsku 2.deildinni og hefur gert frá árinu 2013. Áður spilaði hann með Akureyri handboltafélagi. Hann varð næst markahæstur í þýsku 2.deildinni á síðustu leiktíð og á 18-A landsliðsleiki að baki en hann spilar í vinstra horni.

Balingen er sem stendur í 14.sæti deildarinnar eftir 18 leiki en Rúnar Sigtryggsson tók við liðinu síðasta sumar. Oddur mun ganga til liðs við liðið þegar samningur hans við Emsdetten rennur út næsta sumar.

 


UMMÆLI

Sambíó