Oddur Þór nýr forseti Viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri

Oddur Þór nýr forseti Viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri

Oddur Þór Vilhelmsson, prófessor í Auðlindadeild Háskólans á Akureyri hefur verið ráðinn í stöðu forseta Viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri frá 1. janúar næstkomandi til næstu fjögurra ára. Oddur er doktor í matvælaörverufræði frá The Pennsylvania State University og hefur starfað við Háskólann á Akureyri frá árinu 2004. Hann hefur meðal annars leitt fjölþjóðlegar rannsóknir á sviði umhverifsörverufræði Norðurslóða. 

Meginmarkmið Odds í starfi sviðsforseta er að efla rannsóknarstarf innan sviðsins, en hann segir Viðskipta- og raunvísindasvið hafa margt til að bera sem geri það að aðlaðandi samstarfsaðila í rannsóknum, jafnt akademískum sem atvinnulífstengdum. Á sviðinu starfar vaskur hópur öflugra fræðimanna með víðtæk tengslanet og verðmæta reynslu, en Oddur segist eygja tækifæri til enn frekari sæmdarauka sviðsins í rannsóknum. Ásamt því sér hann fyrir sér fræðasvið sem býður upp á öflugt og rannsóknartengt nám sem lýtur að hagnýtingu bæði mannauðs og náttúru, til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag um ókomna tíð.

Viðskipta- og raunvísindasvið er eitt af þremur fræðasviðum háskólans. Sviðið býður upp á fjölbreytt grunn- og framhaldsnám í tveimur deildum, Auðlindadeild og Viðskiptadeild. Við Auðlindadeild er lögð rík áhersla á nám og rannsóknir í tengslum við sjálfbæra og arðbæra nýtingu náttúruauðlinda á tveimur námsbrautum; sjávarútvegsfræði og líftækni. Viðskiptafræðin leggur áherslu á breiða og almenna þekkingu í viðskiptafræðum sem nýtist á öllum stigum íslensks atvinnulífs. Í heldina eru 750 stúdentar skráðir til náms við Viðskipta- og raunvísindasvið og þar starfa 33 einstaklingar en því til viðbótar koma um 20 aðilar að kennslu með ýmsum hætti. 

Fræðasvið Háskólans á Akureyri auk Viðskipta- og raunvísindasviðs eru Heilbrigðisvísindasvið og Hug- og félagsvísindasvið. 

Sambíó

UMMÆLI