Óli Stefán ráðinn nýr þjálfari hjá KA

Óli Stefán ráðinn nýr þjálfari hjá KA

Óli Stefán Flóventsson er nýr þjálfari hjá karlaliði KA í knattspyrnu. Óli skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið. Hann hefur undanfarin þrjú ár stýrt Grindavík.

Óli kom Grindavík upp í Pepsi deildina á sínum tíma og festi liðið í sessi þar. Hann lék á sínum tíma 212 leiki með Grindavík og Fjölni.

„Tilfinningin að koma norður er mjög góð. Ég þekki KA af góðu einu og veit að hér hefur verið unnið frábært starf síðustu ár. Ég veit líka að ég tek við góðu búi af frábærum þjálfara þannig að það að taka við KA er mikil áskorun fyrir mig“ segir Óli Stefán í samtali við heimasíðu KA í dag. 

„Nú þarf ég fyrst og fremst að setja mig inn í starfið og kynna mér alla möguleika í kringum þetta félag. Ég kem inn í félag sem hefur skýra framtíðarsýn og sterk gildi sem mér líkar. Mín vinna miðast alltaf við að taka skref áfram og þannig verður það líka hér. KA hefur fest sig í sessi á síðustu tveimur árum sem gott Pepsídeildarlið. Nú þarf ég að taka utan um það og reyna að móta lið sem getur tekið næstu skref í því ferli sem félagið hefur lagt grunn að.“

Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA, segir þá í samtali við heimasíðuna að mikil ánægja sé með ráðninguna.

„Það er ljóst að hugmyndir okkar um að uppbygging liðsins til lengri tíma byggi á öflugum kjarna uppalinna leikmanna, fara saman. Óli hefur sýnt það að hann er óhræddur við að setja ábyrgð á unga leikmenn og flétta þá þannig ínní sterka liðsheild sem vinnur vel saman.Við KA menn sjáum marga öfluga unga leikmenn bíða eftir að þroskast og taka þátt í verkefnum meistaraflokks á komandi árum. Við teljum Óla vera þann mann sem hentar best til þess að hrinda þessum áætlunum okkar í framkvæmd.“ segir hann.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó