Opnun myndlistarsýningarinnar Óhöpp & annað vesen

Opnun myndlistarsýningarinnar Óhöpp & annað vesen

Föstudaginn 5. ágúst kl. 20 verður opnuð sýning á verkum Heiðdísar Hólm í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri. Sýningin heitir „Óhöpp og annað vesen“ og mun standa til 14. ágúst.

Viðfangsefni sýningarinnar er blanda af persónulegum minningum, ævintýrum, hugarórum og martröðum svo erfitt er að greina á milli. Til sýnis verða olíumálverk á striga og teikningar á pappír sem voru unnin á síðustu tveimur árum.

Heiðdís Hólm (f. 1991) lauk námi úr Myndlistarskólanum á Akureyri 2016 og stundaði nám við Glasgow School of Art veturinn 2019 – 20. Hún hefur sýnt hérlendis og í Evrópu, t.d. í Skotlandi, Frakklandi og Svíþjóð. Síðastliðin ár hefur hún sett fókusinn á tvívíð verk, oft sjálfsævisöguleg með áherslu á teikningu og dramatík.

www.heiddisholm.com

ÓHÖPP & ANNAÐ VESEN
Mjólkurbúðin, Kaupvangsstræti 12
5. – 14. ágúst 2022
Opnunarhóf föstudaginn 5. ágúst kl. 20.00

UMMÆLI

Sambíó