KIA

Opnun Skógarbaðanna frestast í bili

Opnun Skógarbaðanna frestast í bili

Skógarböðin munu ekki opna á morgun, 11. febrúar, eins og stóð til. Eva Björk Halldórsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Skógarbaðanna, og Sigríður María Hammer, eigandi, segja þó að bygging Skógarbaðanna hafi gengið mjög vel.

Því miður hefur heimsfaraldur haft sín áhrif á framvindu verkefnisins því Covid hefur orsakað skort á ýmsum aðföngum, haft áhrif á lengd  framleiðslu- og flutningstíma og þar að leiðandi hefur afhendingartími flestra aðfanga lengst til muna,“ segir Eva.

Hún segir að böðin hafi einnig tekið ákveðnum breytingum frá því sem upphaflega var lagt upp með. Bygging og laugar hafi verið stækkaðar og auk þess hafi verið gerða breytingar til þess að fella böðin betur inn í landslagið og til að hámarka útsýni yfir fjörðinn og Akureyri.

„Veðurfar hefur verið okkur nokkuð hliðholt, þó svo að einhverjir dagar hafi tafið lítillega, en stórum áfanga var náð í lok Janúar þegar síðasta steypan var tekin í laugunum. Hellulögn og frágangur á laugarsvæði og í kringum húsið hefur gengið vel miðað við árstíma. Nú er verið að einangra og ganga frá byggingunni að utan og glugga – og hurðaísetning er langt komin. Innandyra er einnig mikill gangur og  með hverri vikunni sem líður er hægt að sjá betur og betur að opnun nálgast óðfluga . Búið er að tengja vatnslögnina og verður prufukeyrsla gerð á vatninu í næstu viku. Það mun taka um viku að opna alveg fyrir rennslið þar sem mikill þrýstingur er á lögninni og nauðsynlegt að það sé gert í nokkrum skrefum.“

Eva og Sigríður segja að allir sem standa að böðunum hafi fundið fyrir frábærum viðtökum í samfélaginu öllu og vilja koma á framfæri miklu þakklæti.

„Við fórum af stað með sölu gjafabréfa fyrir jólin sem var tekið gríðarlega vel og margir sem skelltu þeim í jólapakkann í ár. Fyrirspurnir frá innlendum sem erlendum fjölmiðlum og ferðaskrifstofum, sem bíða spennt eftir nýjum áfangastað, hafa verið talsvert margar undanfarið en einnig frá gestum sem hlakka mikið til að koma í heimsókn á ferðalagi sínu um landið. Þess má geta að við höfum nú þegar tekið við fjölda starfsumsókna og er virkilega gaman að sjá áhuga fólks á því að ganga til liðs við okkur með þetta nýja og spennandi verkefni. Farið verður í ráðningar nú á allra næstu vikum.“

Hún segir erfitt að segja til um nákvæmlega hvenær það verður unnt að opna böðin en sú dagsetning verður gefin út þegar nær dregur.

„Við erum þó sannfærð um að við opnun Skógarbaðanna munu gestir okkar njóta þeirra einstöku upplifunar sem þar býðst, meðal annars út frá stórbrotnu útsýni úr blöðunum, kyrrðinni og orku skógarins sem umlykur böðin. Við erum vongóð um að opnun Skógarbaðanna verði von bráðar og hlökkum mikið til að geta tekið á móti og boðið gesti okkar velkomna.“

UMMÆLI

Sambíó