Örfá laus sæti í beint flug til Færeyja

Örfá laus sæti í beint flug til Færeyja

Nú eru aðeins örfá sæti eftir í ferðirnar til Færeyja í febrúar, ferðirnar verða farnar 3. til 6. febrúar og svo 10. – 13. febrúar. Uppselt var í fyrri ferðina en vegna forfalla eru nokkur laus sæti í hana einnig.

Það er færeyska ferðaþjónustan Tur sem býður upp á bein flug á milli Færeyja og Akureyrar. Hægt er að kaupa flug báðar leiðir á 25.995 krónur eða kaupa pakka sem inniheldur flug, hótel og far frá flugvellinum að hótelinu á 59.500 krónur á einstakling.

Börn 13 ára og yngri greiða 19.900 kr. fyrir flugsætin og 49.950 fyrir flugsæti, hótel og far frá flugvelli að hóteli. Börn yngri en 2 ára fá frítt með foreldrum. Flogið verður með færeyska flugfélaginu Atlantic Airways með Airbus 320 þotu. 1x 23 kg innrituð taska er innifalin í pakkanum auk handfarangurs.

Ítarlegar upplýsingar um ferðina má finna með því að smella hér. Áhugasamir geta tekið frá sæti í gegnum Kaffið.is hér að neðan.


UMMÆLI