Orka náttúrunnar opnar nýja hraðhleðslustöð við Hof á Akureyri

Orka náttúrunnar opnar nýja hraðhleðslustöð við Hof á Akureyri

ON vinnur nú að því að uppfæra hraðhleðslunet sitt með nýjustu kynslóð hraðhleðslustöðva á völdum stöðum á landinu. Nýverið var opnuð hraðhleðslustöð með 150 kW hámarkshleðslu við Hof á Akureyri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Nýja hraðhleðslustöðin er sú fimmta sem ON hefur opnað á árinu en fyrirtækið stefnir á að setja upp tíu hraðhleðslustöðvar á þessu og næsta ári. Nýja stöðin getur afgreitt allt að 150 kW hleðslu og er með tvö CSS tengi og eitt Chademo. Hún getur þjónað tveimur bílum í einu sem deila þá aflinu að hámarki 75kW á hvort tengi, en það fer eftir hleðslugetu bílsins. Eldri stöðin við Hof gat hlaðið 50 kW að hámarki og komst þá aðeins einn bíll að í einu.

Áframhaldandi uppbygging hraðhleðslunets ON

ON mun halda áfram að byggja upp net hraðhleðslustöðva en aukin áhersla er lögð á að bjóða upp á aflmeiri hraðhleðslur, þétta net og auka afköst þar sem þörfin er mest. ON býr yfir mikilli reynslu af hleðsluhegðun og notkun íslenskra rafbílaeigenda en fyrirtækið hóf uppbyggingu slíkra innviða árið 2014 þegar fyrsta hraðhleðslan var opnuð við Bæjarháls í Reykjavík. ON rekur nú stærsta hraðhleðslunet landsins með vel á fimmta tug hraðhleðslustöðva hringinn í kringum landið. Staðsetningar nýju hraðhleðslustöðvanna eru valdar út frá gögnum sem sýna hvar er mest þörf á að styrkja og bæta hleðslumöguleika.

Farsælu samstarfi ON og N1 að ljúka

ON hefur frá upphafi rekið hluta hraðhleðslustöðva sinna við bensínstöðvar N1 víðs vegar um land. Samstarfssamningar milli ON og N1 eru nú að renna sitt skeið og verða þeir ekki framlengdir. N1 mun því á næstu vikum taka yfir hraðhleðslustöðvar ON á stöðvum félagsins. Sem dæmi má nefna að á næstu mánuðum munu hraðhleðslur ON við Borgarnes loka og hraðhleðslur frá N1 taka við.

Í ár hefur ON opnað nýjar hraðhleðslur við Varmahlíð 110kW og á þremur stöðum í Reykjavík; við Bæjarháls 150kW, við Miklubraut norður 150kW og við Suðurfell 100kW. Sem fyrr greinir opnar nú 150kW stöð við Hof á Akureyri og stefnt er að því að opna aðra 150kW hraðhleðslu á Norðurlandi fyrir áramótin.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó