Örn Kató og Alicja valin sundfólk ársins hjá Óðni

Örn Kató og Alicja valin sundfólk ársins hjá Óðni

Örn Kató Arnarsson og Alicja Julia Kempistry voru valin sundfólk ársins 2023 hjá Sundfélaginu Óðni á Akureyri.

Á vef Sundfélagins segir eftirfarandi um sundfólk ársins:

Örn Kató Arnarsson.

Hann býr í Svíþjóð þar sem hann æfir sund við bestu aðstæður og stundar nám. Örn flutti til Svíþjóðar í fyrra til þess að geta einbeitt sér betur að íþrótt sinni og náð frekari árangri. Hann hefur sýnt mikla framfarir og hefur æft gríðarlega vel á árinu. Hann leggur mesta áherslu á lengri sundgreinar sem eru 1500m., 800m. og 400m. skriðsund en hann syndir einnig bringusundsgreinar. Hann hefur náð góðum árangri og hefur t.d. unnið gullið í unglingaflokki í vestur Svíþjóð í öllum lengri greinunum.

Alicja Julia Kempisty.

Alicja er ung og efnileg sundkona og ein sterkasta sundkona landsins í sínum aldursflokki og hefur unnið sér sæti í Framtíðarhóp Sundsambands Íslands síðustu misserin. Hennar sterkustu greinar eru skriðsundsgreinar, einna helst 200m. skriðsund en þar er hún stigahæst sundkvenna Óðins með 507 FINA stig. Fjölhæfni hennar þó mikil og er hún sterk í öllum vegalengdum í skriðsundi en hún er jafnframt öflug baksunds- og flugsundskona. Alicja stundar sína íþrótt vel, mætir á allar æfingar og sýnir mikinn metnað með ástundun sinni.

Sambíó

UMMÆLI