Óvenju þurrt sumar á Akureyri

Óvenju þurrt sumar á Akureyri

Samanlögð úrkoma á Akureyri í sumar hefur verið óvenjulítil frá því í vor. Í hugleiðingum Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings, á vefnum Blika.is segir að ef ekki rætist úr hljóti að fara bera á vatnsskorti á Norðurlandi.

Einar skrifar að það sé að jafnaði fremur þurrt á vorin og framan af sumri á svæðinu en að ástandið jafni sig þegar líður á sumarið. Nú beri þó svo við að samanlögð úrkoma sé óvenju lítil.

Sjá einnig: Júlí hlýjasti mánuður aldarinnar

Í maí rigndi aðeins tvo daga, 23. og 24. maí. Í júní var úrkoma mest í formi slyddu 14. til 17. júní. Í júlí rigndi einkum seint í mánuðinum eftir mikla samfellda hita. Það sem af er ágúst er úrkoman svo ekki nema 4,

„Í það heila tekið er úrkoman því um 47% af því sem menn eiga að venjast frá 1. maí.  Líklega hefur aldrei verið svo þurrt á Akureyri að sumarlagi  að því gefnu að það fari ekki að rigna úr þessu.  Á því eru reyndar litlar horfur eins og sjá má á 10 daga spá ECMWF af Brunni Veðurstofunnar.  Fremur þurrt um land allt,“ skrifar Einar.

„Alls engri úrkomu er spáð til 22.ágúst. Stjáum til hvað gerist í lok mánaðarins. Ef ekki rætist úr hlýtur að fara að bera á vatnsskorti norðanlands, lækir að þorna upp o.s.frv. ekki síst við Eyjafjörð!“


UMMÆLI