Pósthúsið við Strandgötu lokar

Pósthúsið við Strandgötu lokar

Frá og með morgundeginum, 1. júní, sameinar Pósturinn tvö pósthús undir einu þaki á Akureyri og pósthúsið á Standgötu lokar. Við þessa sameiningu verður pósthúsið á Norðurtanga í hópi tveggja stærstu pósthúsa landsins út frá fjölda afgreiðslna með yfir 100 þúsund afgreiðslur á ári.

„Við þökkum fyrir góðar stundir á Strandgötunni og tökum vel á móti viðskiptavinum á Norðurtanga,“ segir í tilkynningu frá Póstinum.

Þjónustunet Póstsins á Akureyri mun því samanstanda af pósthúsinu á Norðurtanga, tveimur Póstboxum við Hagkaup og Nettó Hrísalund, Pakkaporti við Orkuna Hörgárbraut, Netlúgu fyrir fyrirtæki sem staðsett er við Norðurtanga og heimsendingu til fyrirtækja og einstaklinga. Þá mun þriðja Póstbox bæjarins opna bráðlega fyrir utan Landsbankann Strandgötu.

„Viðskiptavinir Póstsins hafa kallað eftir fleiri afhendingarstöðum og sveigjanleika þegar kemur að því að sækja þjónustu til okkar. Við höfum svarað því með fjölgun Póstboxa og Pakkaporti á Akureyri. Þetta eru afhendingarstaðir sem hafa sveigjanlegri afgreiðslutíma, eru staðsettir í alfaraleið og viðskiptavinir geta sótt sendingarnar sínar þangað sem þeim hentar þegar þeim hentar, en Póstboxin eru opin allan sólarhringinn. Við bjóðum alla velkomna til okkar á Norðurtanga“ segir Skúli Rúnar Árnason, stöðvarstjóri Póstsins á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI