Origo Akureyri

Ráðstefna í Hofi Akureyri 12. apríl. Hvað er góður skóli? Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli

Ráðstefna í Hofi Akureyri 12. apríl. Hvað er góður skóli? Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli

Tímamóta ráðstefna um menntamál: „Hvað er góður skóli?“ Gæðastarf í leik- og grunnskólum á mannamáli verður haldin þann 12. apríl næstkomandi í Hofi á Akureyri. Ráðstefnan er ætluð sveitarstjórnarfólki, kennurum, starfsfólki skóla, áhugafólki um skólastarf, foreldrum og nemendum. Dagskráin hefst kl. 09.00 og lýkur um kl. 16.00. 

Skólaráðgjafaþjónustan Ásgarður stendur fyrir ráðstefnunni og hægt er að tryggja sér miða á heimasíðu Ásgarðs www.ais.is. Á ráðstefnunni koma fram kennarar, skólastjórnendur, ráðgjafar og stjórnendur sveitarfélaga sem þekkja vel notkun gæðaviðmiða til þess að efla gæði skólastarfs. Hagnýt ráð og leiðbeiningar á mannamáli sem henta öllum sem vilja skilja gæðastarf eða auka gæði nútíma skólastarfs með gæðaviðmiðum.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir sérfræðinga, kennara, skólastjórnendur, foreldra og nemendur til að koma saman og ræða gæði og mikilvægi menntunar í nútíma samfélagi. Við hvetjum alla áhugasama um gott skólastarf í leik- og grunnskólum á Íslandi til að mæta og taka þátt í þessum mikilvægu samræðum.

Kristrún Lind Birgisdóttir eigandi og framkvæmdastjóri Ásgarðs stýrir ráðstefnunni. Aðrir sem fram koma eru: 

  • Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, fjármálaráðherra. Gæðastarfshættir í skólum, fjárfesting til framtíðar. 
  • Nemendur úr Ásgarðsskóla – skóla í skýjunum – Hvað er góður skóli? 
  • Ásta Bjarney Elíasdóttir skólastjóri Breiðholtsskóla Að breyta orðræðu um og við nemendur. 
  • Arndís Anna Jakobsdóttir aðstoðarskólastjóri í Auðarskóla. Námsvísar í leikskólastarfi. Að hafa yfirsýn yfir gæðastarf með aðstoð námsvísa. 
  • Heimir Árnason formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar ávarpar ráðstefnuna og fjallar um innleiðingu menntastefnu Akureyrarbæjar með gæðaráðum leik- og grunnskóla. Skólaprófíll vísar veginn til umbóta. 
  • Gunnþór E. Gunnþórsson ráðgjafi í Ásgarði. Skoðunarvottorð leik- og grunnskóla á mannamáli. 
  • Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir verkefnastjóri í mennta- og mannauðsmálum hjá Samtökum iðnaðarins. Nýsköpun í grunnskólum. Samþætting nýsköpunar, samfélags og atvinnulífs. 
  • Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri Brekkuskóla. Að koma á skilvirku gæðaráði og ná árangri með gæðastarfi með skipulögðum hætti. 
  • Héðinn Svarfdal. Fyrirmyndarsamstarf við foreldra í leik- og grunnskólum. 
  • Aðalheiður Skúladóttir skólastjóri Giljaskóla. Að finna leiðir til þess að gæðarýna skipulag læsis og bregðast við niðurstöðum PISA 
  • Esther Ösp Valdimarsdóttir skólastjóri Ásgarðsskóla – skóla í skýjunum. Námsmat með nemendum og foreldrum. 
  • Helga María Þórarinsdóttir leikskólastjóri og Ingi Jóhann Friðjónsson aðstoðarleikskólastjóri í Lundarseli/Pálmholti. Þegar gæðaviðmið segja það sem liggur í loftinu. 
  • Kristrún Lind Birgisdóttir eigandi og framkvæmdastjóri Ásgarðs. Persónumiðað skólastarf fyrir öll börn – það er góður skóli!
  • Karítas Sigurlaug Ingimarsdóttir og Steinunn Ragnarsdóttir. Gæðastarf með 5 ára nemendum við Grunnskóla Bolungarvíkur. 
  • Arna Vilhjálmsdóttir og Maggý Hjördís Keransdóttir kennarar. Valda í Skjalda. Kvikmyndahátíð grunnskólanema á Patreksfirði. Gæðavottað nýsköpunarverkefni.

UMMÆLI

Sambíó