Rakel Hinriks tekur við Taktíkinni

Rakel Hinriks tekur við Taktíkinni

Taktíkin, þáttur N4 um íþróttir og lýðheilsu á landsbyggðunum, hefur aftur göngu sína eftir stutt hlé í kvöld. Skúli Geirdal hefur stýrt þáttunum frá upphafi og gerði 100 þætti frá árinu 2018. Nú tekur Rakel Hinriksdóttir við stjórninni og fyrsti þátturinn verður sýndur í kvöld, mánudaginn 19. apríl kl. 20.30.

Rakel hefur verið dagskrárgerðarkona á N4 í tvö ár og er fyrrum knattspyrnukona. Núna nýverið stjórnaði hún þáttunum Íþróttabærinn Akureyri.

Í kvöld verður rætt um svokallaða afreksvæðingu. Það er þegar afreksmiðaðri íþróttaþjálfun er beitt á sífellt yngri iðkendur. Til þess að fá sjónarmið úr sem flestum áttum, eru viðmælendur þáttarins frá ýmsum sviðum. Ingi Þór Ágústsson er í framkvæmdastjórn Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og reynslumikill sundþjálfari, Richard Taethinen er með doktorspróf í íþróttasálfræði, aðjúnkt við sálfræðideild Háskólans á Akureyri og einn af þeim sem skrifaði undir yfirlýsingu um að snemmtæk afreksvæðing barna væri óæskileg, Ólína Freysteinsdóttir er fjölskylduráðgjafi, Jón Stefán Jónsson er íþróttafulltrúi Þórs á Akureyri og knattspyrnuþjálfari og María Finnbogadóttir er afreks- og landsliðskona á skíðum, fór aðeins 14 ára gömul til Austurríkis til þess að helga sig skíðaíþróttinni. María miðlar af reynslu sinni sem ung íþróttakona sem setur íþróttina í fyrsta sæti frá því að hún man eftir sér.

Þátturinn er í línulegri dagskrá í kvöld kl. 20.30, eftir það verður hann aðgengilegur á N4 safninu hjá Sjónvarpi Símans, facebook síðunni N4Sjonvarp og á vefsíðu N4, www.n4.is. Einnig er Taktíkin til sem hlaðvarp og þátturinn kemur þar inn fljótlega eftir frumsýningu.


UMMÆLI

Sambíó