Rannsókn á lífi fjölskyldufólks á tímum COVID-19

Rannsókn á lífi fjölskyldufólks á tímum COVID-19

Þær Andrea Hjálmsdóttir og Valgerður S. Bjarnadóttir fá styrk úr minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar vegna rannsóknarinnar „Lífið á tím­um kór­ónu­veirunn­ar: Breyt­ing­ar á fjöl­skyldu­lífi, at­vinnu og ábyrgð“. Þetta kemur fram á vef Háskólans á Akureyri.

Andrea Hjálmsdóttir er félagsfræðingur og lektor við hug- og félagsvísindasvið HA og Valgerður S. Bjarnadóttir er menntunarfræðingur og nýdoktor við hug- og félagsvísindasvið HA. Þær hlutu nýverið styrk að fjár­hæð kr. 1.000.000 úr minn­ing­ar­sjóði Eðvarðs Sig­urðsson­ar.

Rannsóknin snýr að lífi fjölskyldufólks á tímum COVID-19. Skerðing­ar á leik- og grunn­skóla­starfi, lok­an­ir fram­halds­skóla, há­skóla og vinnustaða, auk hvers kyns skerðing­ar á þjón­ustu, hafa víðtæk áhrif á líf fólks og á það á ekki síst við um til­veru fjöl­skyldu­fólks. Miklar breyt­ing­ar hafa orðið á heim­il­is- og at­vinnu­lífi, sem mik­il­vægt er að öðlast skiln­ing á.

Mark­mið rann­sókn­ar­inn­ar eru ann­ars veg­ar að öðlast yf­ir­sýn með því að kort­leggja með dag­bókar­færsl­um áhrif COVID-19 á dag­legt líf barna­fjöl­skyldna meðan far­ald­ur­inn stend­ur yfir og hins veg­ar að öðlast með viðtals­rann­sókn dýpri skiln­ing á upp­lif­un og reynslu for­eldra af áhrif­um hans á sam­ræm­ingu fjöl­skyldu og at­vinnu. 

Sambíó

UMMÆLI