Rannveig og Þorbergur Ingi sigruðu Súlur Vertical Ultra

Rannveig og Þorbergur Ingi sigruðu Súlur Vertical Ultra

Metþátttaka var í fjallahlaupinu 66°Norður Súlum Vertical sem var haldið á Akureyri í dag. Á fimmta hundrað manns tóku þátt og var keppt í þremur vegalengdum, 55km, 28km og 18 km. Allar keppnisvegalengdir hófust í Kjarnaskógi og lauk í miðbæ Akureyrar.

Fyrstu hlauparar hófu keppni kl. 7 í morgun og var síðasti hópurinn ræstur út kl. 11. Mjög slæm veðurspá var í vikunni, einkum til fjalla, og ákvað mótsstjórn að höfðu samráði við veðurfræðinga og viðbragðsaðila að gera umtalsverðar breytingar á 55km leiðinni til þess að tryggja öryggi keppenda. Í stað þess að hlaupa fram á Glerárdal og upp á Hlíðarfjall fóru þeir sem lengst hlupu tvo 28km hringi, tvær ferðir upp á bæjarfjallið Súlur.

Framkvæmd hlaupsins gekk í öllum meginatriðum vel og samkvæmt áætlun. Veðrið var nokkru skaplegra en verstu spár höfðu gert ráð fyrir og má segja að aðstæður hafi verið með ágætum. Vetrarlegt var um að litast efst á Súlutoppi en annars staðar á leiðunum var fínt hlaupaveður. Í endamarkinu í miðbæ Akureyrar tók mikill fjöldi fólks á móti hlaupurum og skapaðist góð stemning meðal þátttakenda, aðstandenda þeirra og annarra gesta.

Fyrst kvenna í 55km Súlum Vertical Ultra var Rannveig Oddsdóttir en Þorbergur Ingi Jónsson var fyrstur karla. Andrea Kolbeinsdóttir sigraði 28 km hlaupið í kvennaflokki og Halldór Hermann Jónsson í karlaflokki. Í 18 km hlaupinu var það Anna Berglind Pálmadóttir sem kom fyrst kvenna í mark en í karlaflokki var það Logi Ingimarsson sigraði.

UMMÆLI

Sambíó