Origo Akureyri

Rauði krossinn við Eyjafjörð hefur úthlutað fatakortum fyrir 6,2 milljónir á árinu

Rauði krossinn við Eyjafjörð hefur úthlutað fatakortum fyrir 6,2 milljónir á árinu

Í síðustu viku úthlutaði Rauði krossinn við Eyjafjörð fatakortum að andvirði yfir 2,6 milljóna króna, en í heildina hefur úthlutun í formi fatakorta árið 2022 numið 6,2 milljónum króna á árinu.

Í síðustu viku úthlutaði Rauði krossinn við Eyjafjörð 524 fatakortum til fólks á starfssvæði deildarinnar sem óskaði eftir aðstoð í gegnum jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis. Að Velferðarsjóðnum standa Rauði krossinn við Eyjafjörð, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og Hjálpræðisherinn. Hvert fatakort er að verðmæti 5.000 krónur.

Þessa viku er 50 prósent afsláttur af öllu nema ullarvörum í verslun Rauða krossins á Akureyri, svo hægt er að auka verðmæti hvers korts verulega.

„Við þökkum þeim sem komið hafa fötum sem ekki eru lengur í notkun til okkar og ekki síður þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem koma að flokkun og sölu fatnaðar, því án sjálfboðaliða væri þessi aðstoð ekki möguleg,“ segir í tilkynningu frá Rauða krossinum á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó