Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2022

Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2022

Aðalfundur Norðurorku hf. var haldinn fyrr í dag, 25. apríl 2023. Eigendur félagsins eru sex sveitar­­félög, Akureyrar­bær, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur­ og Þingeyjarsveit. Í tilkynningu á vef Norðurorku segir að rekstur félagsins hafi gengið vel á árinu 2022.

Ársvelta samstæðunnar var 4,5 milljarðar króna. Hagnaður ársins er 152 milljónir króna eftir skatta, eigið fé er 12,9 milljarðar króna. Á aðalfundinum í dag var ákveðið að greiða hluthöfum 15 prósent arð af hlutafé eða 127 milljónir króna. Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengir hf. og Norak ehf., en rekstur þeirra allra gekk vel á árinu.

„Rekstur samstæðunnar var í takti við áætlanir en hagnaður minni en áætlað sem skýrist fyrst og fremst af því að fjármagnskostnaður var tvöfalt hærri en áætlun gerði ráð fyrir,“ segir í tilkynningu Norðurorku.

Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 60,7%. Veltufé frá rekstri er 1.495 milljónir króna og handbært fé í árslok er 235 milljónir króna. Ekki voru tekin ný lán á árinu. Langtímaskuldir í árslok voru tæplega 7,4 milljarðar króna.

Til fjárfestinga samstæðunnar í endurbótum á kerfum og til nýframkvæmda var varið rúmlega 1,4 milljarða króna sem var í takt við áætlun ársins. Miklar framkvæmdir eru á starfssvæði Norðurorku og eru fjárfestingar móðurfélagsins, horft til næstu fjögurra ára, áætlaðar ríflega 6,6 milljarðar króna.

Í stjórn Norðurorku voru kjörin þau Geir Kristinn Aðalsteinsson, Hilda Jana Gísladóttir, Hlynur Jóhannsson, Sif Jóhannesar Ástudóttir og Þórhallur Jónsson. Í varastjórn voru kjörin Heimir Örn Árnason, Hlynur Örn Ásgeirsson, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Sif Hjartardóttir og Víðir Benediktsson.

Nánar á no.is.


UMMÆLI

Sambíó