„Reykjavíkurflugvöllur fer ekkert næstu árin eða áratugina“

Reykjavíkurflugvöllur

Á fundi bæjarráðs Akureyrar fyrir helgi var meðal annars fjallað annars vegar um stöðu framkvæmda við flughlaðið á Akureyrarflugvelli og einnig framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar. Í fundargerð bæjarráðs segir:

„Bæjarráð skorar á fjármálaráðherra og ríkisstjórn að úthluta fjármagni í fjárlögum til þess að klára flughlaðið við Akureyrarflugvöll. Eins og fram hefur komið er stækkun flughlaðsins mikið öryggismál vegna vaxandi flugumferðar til og frá Íslandi, en öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur í þessu sambandi bent á mikilvægi Akureyrarflugvallar og Egilsstaðaflugvallar sem varaflugvalla. Þá er flughlaðið grundvöllur vaxandi flugstarfsemi á Akureyrarflugvelli sem mun styrkja og efla atvinnulíf og byggð á Norðurlandi öllu.“

Einnig var rætt um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar, neyðarbraut og nýja flugstöð.

„Bæjarráð Akureyrar fagnar framkomnum hugmyndum samgönguráðherra um byggingu nýrrar flugstöðvar við Reykjavíkurflugvöll. Núverandi flugstöð er úr sér gengin og á engan hátt boðleg sem slík. Það er mikilvægt að geta boðið flugfarþegum og starfsfólki góða aðstöðu, ekki síst í ljósi hugmynda um eflingu innanlands flugsins. Þá er einnig ljóst að Reykjavíkurflugvöllur fer ekkert næstu árin eða áratugina, enda ekki enn fundin jafngóð eða betri lausn,“ segir í bókuninni.

UMMÆLI

Sambíó