Origo Akureyri

Rúbína hannar Edrúarbol SÁÁ

Rúbína hannar Edrúarbol SÁÁ

Akureyringurinn og fatahönnuðurinn Rúbína Singh er hönnuður Edrúar bolsins sem er seldur til styrktar SÁÁ.

Rúbína er 26 ára gömul og er að klára síðasta árið sitt í Listaháskóla Íslands. Hún hefur alla tíð haft mikinn áhuga á tísku og hægt er að fylgjast með verkum hennar á Instagram síðu hennar: rubinasingh_

„Það verður spennandi að fylgjast með þessari flottu ungu konu í framtíðinni og þökkum við henni innilega fyrir að taka þátt í þessu verkefni með okkur,“ segir í tilkynningu SÁÁ.

„Ég heiti Rúbina Singh, er upprunalega að norðan, er að læra fatahönnun í Listaháskólanum en titla mig sem hönnuð að allskonar tagi. Ég fékk það skemmtilega tækifæri að hanna útlitið af bolum sem eru væntanlegir í sölu til styrktar SÁÁ. Innblásturinn sótti ég frá slagorðinu þeirra: Allt annað líf. Ég skoðaði hvaða þýðingu þessi mantra hefur fyrir mig og fólkið sem mér þykir vænst um. Út frá því fann ég fyrir þeirri áminningu að velferð okkar allra er samtengd, þegar okkur líður vel sendum við frá okkur jákvæða strauma. Þeir straumar vinda upp á sig og smita útfrá sér. Ég vildi reyna að ná þeirri tilfinningu i þessu verki. Ég vona innilega að boðskapurinn skili sér og að bolirnir munu sjást sem víðast! Í tilefni Edrúar Febrúar koma þessir bolir inn á vefverslun SÁÁ,“ skrifar Rúbína á vef SÁÁ.

Hægt er að nálgast Edrúarbolinn hér.

UMMÆLI

Sambíó