SAk gaf 43 sjúkrarúm til sjúkrahúsa í  Sierra LeoneStærstur hluti rúmanna fór til Princess Christain Maternity Hospital (PCMH), sem er helsta fæðingarsjúkrahúsið í Sierra Leone og einnig á þrjú önnur sjúkrahús.

SAk gaf 43 sjúkrarúm til sjúkrahúsa í Sierra Leone

Nýverið afhenti Aurora velgerðasjóður 43 sjúkrarúm til sjúkrahúsa í Sierra Leone í Afríku. Sjúkrahús Akureyrar gaf rúmin og lagði Samskip til flutninginn á þeim er fram kemur í tilkynningu. Stærstur hluti rúmanna fór til Princess Christain Maternity Hospital (PCMH), sem er helsta fæðingarsjúkrahúsið í Sierra Leone og einnig á þrjú önnur sjúkrahús.

Héraðið varð virkilega illa úti þegar borgarastríðið í landinu stóð sem hæst og var sjúkrahúsið þá jafnað við jörðu. Hafist var handa við endurbyggingu strax í kjölfar stríðsloka árið 2001 en inniviði í sjúkrahúsið vantar þó enn sárlega og braust því út mikill fögnuður þegar rúmin bárust.

Aurora velgerðasjóður hefur starfrækt þróunarsamvinnuverkefni í Sierra Leone undanfarin 13 ár. Samhliða eigin verkefnum hefur sjóðurinn átt í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki sem hafa viljað styðja við samfélagsleg verkefni í landinu.

UMMÆLI