Samstarfssamningur Einingar-Iðju og SÍMEY

Samstarfssamningur Einingar-Iðju og SÍMEY

Í gær skrifaði Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, undir samstarfssamning við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar.

Markmið samningsins er að skapa enn fleiri möguleika fyrir félagsmenn Einingar-Iðju til að sækja sér fræðslu og auka við starfstengda hæfni sína.

„Félagið hefur átt mjög gott samstarf við SÍMEY til fjölda ára en með þessum samningi er komin meiri festa í samstarfið. Fulltrúar frá SÍMEY sátu t.d. nýverið fund með fræðslunefnd félagsins þar sem farið var yfir ýmis mál tengd námskeiðahaldi. Slíkir fundir verða haldnir reglulega héðan í frá og mun SÍMEY kappkosta við að endurspegla þær þarfir er birtast innan félagsins varðandi símenntun. Þá hefur SÍMEY líka tekið að sér að halda utan um dyravarðanámskeið sem félagið hefur verið með í samstarfi við Lögregluna á Norðurlandi eystra undanfarana áratugi. Ég bind miklar vonir við þetta samstarf og tel það til heilla fyrir okkar félagsmenn,“ segir Björn. 

SÍMEY býður upp á fjöldamörg námskeið sem eru bæði starfstengd og tengd áhugamálum hvers og eins. Fjölmörg námskeið og námsleiðir eru í boði og geta áhugasamir meðal annars kíkt hér til að sjá hvað er í boði. 

UMMÆLI

Sambíó