Prenthaus

Samstarfssamningur um sameiginlegan stuðning um loftslagsyfirlýsingu Akureyrarbæjar og Festu

Samstarfssamningur um sameiginlegan stuðning um loftslagsyfirlýsingu Akureyrarbæjar og Festu

Akureyrarbær og Festa- miðstöð um samfélagsábyrgð hafa undirritað samstarfssamning um sameiginlegan stuðning um loftslagsyfirlýsingu Akureyrarbæjar og Festu. Samstarfið felst í þátttöku beggja aðila í kynningu til fyrirtækja og stofnana, fræðslustarfa og hvatningu til að taka þátt í loftslagsyfirlýsingunni og framfylgja markmiðum hennar. Borgir og bæir ásamt fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum, verða sífellt mikilvægari þegar kemur að því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og standast þau alþjóðlegu og innlendu markmið sem sett hafa verið um losun þeirra.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fagnar því að búið sé að festa þetta mikilvæga samstarf enda séu umhverfismál sveitarfélaginu hugleikin. Hrund Gunnsteinsdóttir er framkvæmdastjóri Festu og hún segir það vera sanna ánægju að fá Akureyrarbæ, og á komandi mánuðum fyrirtæki og stofnanir á svæðinu, til frekara samstarfs um sameiginleg markmið okkar allra, sem eru að draga úr úrgangi og gróðurhúsalofttegundum með samstilltu átaki. Undirritunin sé mikilvægt skref á þessari vegferð og starfsfólk Festu séu fullt tilhlökkunar yfir framhaldinu.

Frétt af vef Akureyrarbæjar.

Sambíó

UMMÆLI