Samstöðufundur á Akureyri vegna ÚkraínuMynd: Akureyri.net

Samstöðufundur á Akureyri vegna Úkraínu

Úkraínumaðurinn Andrii Gladii, sem búsettur hefur verið á Akureyri síðustu þrjú ár, hefur boðað til samstöðufundar á Ráðhústorgi í dag, sunnudag, klukkan 15.00 vegna innrásar Rússa í heimaland hans. Þetta kemur fram á Akureyri.net.

Gladii er frá borginni Zaporizhzhia í austurhluta Úkraínu. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og starfar hjá Norðurslóðaneti Íslands á Akureyri.

„Fólkið mitt þjáist. Tökum höndum saman og sýnum samstöðu með úkraínsku þjóðinni á erfiðum tímum. Mætum á Ráðhústorg kl. 15 og mótmælum fordæmalausri innrás á tímum friðar í Evrópu,“ segir hann í samtali við Akureyri.net, og kveðst ómögulega geta setið hjá.

„Við verðum öll að gera allt sem í okkar valdi stendur og kalla eftir sterkum viðbrögðum stjórnvalda – til að koma í veg fyrir þann mannlega harmleik sem vofir yfir milljónum manna,“ segir í kynningu á viðburðinum á Facebook..


UMMÆLI