Sandra og Bjarni valin íþróttafólk Þórs árið 2022Mynd: Skapti Hallgrímsson/akureyri.net

Sandra og Bjarni valin íþróttafólk Þórs árið 2022

Íþróttafólk Þórs fyrir árið 2022 var valið á samkomunni Við áramót sem fór fram í Hamri í gær. Knattspyrnufólkið Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Sandra María Jessen eru íþróttafólk Þórs 2022.

Sandra María Jessen var tilnefnd af stjórn Þórs/KA fyrir kjörið á íþróttakonu Þórs. Í tilkynningu á vef Þórsara segir um Söndru:

Sandra María hefur lagt gríðarlega vinnu í að koma sér í fyrra form eftir barnsburð. Hún er einn af lykilleikmönnum Þórs/KA og setur sér skýr og háleit markmið. Hún stefnir á að koma til baka í A-landslið Íslands og var nú í haust valin í æfingahóp liðsins. Sandra mætir ávallt einbeitt til leiks og gerir allt sitt af fullum krafti.

Hún spilaði alla leiki Þórs/KA í sumar og var markahæst í liðinu með átta mörk í, aðeins þremur mörkum frá markahæsta leikmanni sumarsins í Bestu deild kvenna.

Sandra María bætti félagsmet Rakelar Hönnudóttur þegar hún skoraði 75. mark sitt í efstu deild í leik í maí og hélt áfram að bæta það út tímabilið og endaði í 81 marki í efstu deild þegar upp var staðið í haust, en hún náði jafnframt þeim áfanga í haust að skora 100. mark sitt fyrir Þór/KA þegar önnur mót á vegum KSÍ og leikir í Evrópukeppni eru talin með.

Knattspyrnudeild Þórs tilnefndi Bjarna Guðjón Brynjólfsson sem knattspyrnukarl ársins úr sínum röðum. Í tilkynningu á vef Þórsara segir um Bjarna:

Þrátt fyrir ungan aldur er Bjarni orðinn einn af lykilmönnum meistaraflokks Þórs í knattspyrnu. Bjarni kemur úr hinu öfluga yngri flokka starfi Þórs og hefur rækilega stimplað sig inn hjá Þór og yngri landsliðum Íslands.

Bjarni sem er aðeins átján ára spilaði 19 leiki í lengjudeildinni með Þór á síðasta tímabili og skoraði 6 mörk. Þá lék hann 7 leiki með U19 ára landsliði Íslands og skoraði 1 mark.

Sambíó

UMMÆLI