Origo Akureyri

Sauna- og infrarauðir klefar vígðir í sundlauginni í Hrísey

Sauna- og infrarauðir klefar vígðir í sundlauginni í Hrísey

Sundlaugin í Hrísey fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir og í tilefni þess ásamt því að liðin eru 16 ár frá vígslu Íþróttamiðstöðvarinnar var boðið upp á léttar veitingar í íþróttamiðstöðinni í dag. Jafnframt voru nýir sauna- og infrarauðir klefar formlega teknir í notkun ásamt nýrri útiklukku. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hríseyjar.

Bára Steinsdóttir stýrði athöfninni og bauð gesti velkomna. Konur í Kvenfélagi Hríseyjar stigu fram og ávarpaði Hrund Teitsdóttir samkomuna fyrir þeirra hönd. Kvenfélagið samþykkti á aðalfundi sínum í febrúar að gefa sundlauginni infra rauðan klefa. Hrund sagði meðal annars frá því hvernig konur í kvenfélagi Hríseyjar unnu ötullega að því að sundlaugarbyggingin varð að veruleika á sínum tíma, héldu meðal annars kökubasara og skemmtisamkomur til að afla fjár til byggingarinna. Hrund sagði meðal annars:

Saga sundlaugarbyggingarinnar sýnir dugnað og samstöðu Hríseyinga. Enn í dag sjáum þess merki að fólk vinnur víða óeigingjarnt starf í þágu eyjarinnar. Kvenfélagið ákvað á aðalfundi sínum í febrúar að minnst framtaks forvera sinna og fjárfesta í infra-rauðum klefa fyrir sundlaugina. Með því leggur kvenfélagið áfram sitt af mörkum til þess að bæta aðstöðu Hríseyinga til heilsueflingar og samveru.

„Frábært framtak og voru kvenfélagskonum færðar þakkir fyrir rausnalega gjöf. Næst gaf Bára Ingólfi Sigfússyni, formanni hverfisráðs, orðið. Ingólfur tók fram að umræða um saunaklefa fyrir sundlaugina eigi sér nokkra ára sögu, hverfisráð viðraði möguleika á slíkum kaupum í árslok 2021 en það gekk ekki eftir. Í byrjun desember á síðasta ári fóru hjólin aftur að snúast, en meðal annars hafði Elín forstöðumaður sundlaugar Akureyrarbæjar frumkvæði af því að blása aftur lífi í saunaklefamálið. Í góðu samstarfi við Elínu og starfsfólk umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar þau Rut og Jón Birgi vann hverfisráð að því að pantaður var þessi glæsilegi Cubus saunaklefi frá sauna.is. Eyjasmíði ehf. annaðist uppsetningu á klefanum og Rafeyri ehf. vann svo við raflagnir og tengingar,“ segir í tilkynningu Hríseyjar.

„Þetta var afar skemmtilegur viðburður með glæsilegum veitingum. Nú er um að gera að drífa sig í sund í Hrísey og prófa bæði sauna- og infrarauðu klefana.“ Á vef Hríseyjar má sjá fleiri myndir frá viðburðinum

Netsprengja NTC
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó