Seinni bólusetning á Norðurlandi fyrir þau sem fengu Janssen byrjar í næstu viku

Seinni bólusetning á Norðurlandi fyrir þau sem fengu Janssen byrjar í næstu viku

Bólusetningar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands fyrir einstaklinga sem fengu Janssen bóluefnið í fyrri skammt hefjast í næstu viku.

Af þeim sem eru full­bólu­sett­ir og greind­ust með kór­ónu­veiruna í júlí voru 345 með bólu­efni Jans­sen eða 53%. Þetta kom fram í svari embætt­is land­lækn­is við fyr­ir­spurn mbl.is á dögunum.

Á meðal þeirra sem fengu Janssen í vor voru kennarar og starfsfólk skóla. Í dag hófst bólusetning með örvunarskammt af bóluefnunum frá Pfizer og Moderna fyrir þau á höfuðborgarsvæðinu.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands mun gefa út nánari upplýsingar um tímasetningar og fyrirkomulag á Norðurlandi seinnipartinn á morgun.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó